#

Undesirable substances in seafood products. Results from the monitoring activities in 2006

Skoða fulla færslu

Titill: Undesirable substances in seafood products. Results from the monitoring activities in 2006Undesirable substances in seafood products. Results from the monitoring activities in 2006
Höfundur: Ásta Margrét Ásmundsdóttir 1963 ; Vordís Baldursdóttir 1968 ; Rabieh, Sasan ; Helga Gunnlaugsdóttir 1963
URI: http://hdl.handle.net/10802/1424
Útgefandi: Matís
Útgáfa: 07.2008
Ritröð: Skýrsla Matís ; 17-08
Efnisorð: Sjávarfang; ; Díoxín; ; Snefilefni; Sjávarafurðir
ISSN: 1670-7192
Tungumál: Enska
Tegund: Skýrsla
Útdráttur: Árið 2003 hófst, að frumkvæði Sjávarútvegsráðuneytisins, vöktun á óæskilegum
efnum í sjávarafurðum, bæði afurðum sem ætlaðar eru til manneldis sem og
afurðum lýsis- og mjöliðnaðar.
Tilgangurinn með vöktuninni er að meta ástand íslenskra sjávarafurða með tilliti
til magns aðskotaefna. Gögnin sem safnað er í vöktunarverkefninu verða
einnig notuð í áhættumati og til að hafa áhrif á setningu hámarksgilda
óæskilegra efna t.d í Evrópu.
Umfjöllun um aðskotaefni í sjávarafurðum, bæði í almennum fjölmiðlum og í
vísindaritum, hefur margoft krafist viðbragða íslenskra stjórnvalda.
Nauðsynlegt er að hafa til taks vísindaniðurstöður sem sýna fram á raunverulegt
ástand íslenskra sjávarafurða til þess að koma í veg fyrir tjón sem af slíkri
umfjöllun getur hlotist. Ennfremur eru mörk aðskotaefna í sífelldri endurskoðun
og er mikilvægt fyrir Íslendinga að taka þátt í slíkri endurskoðun og styðja mál
sitt með vísindagögnum. Þetta sýnir mikilvægi þess að regluleg vöktun fari
fram og að á Íslandi séu stundaðar sjálfstæðar rannsóknir á eins mikilvægum
málaflokki og mengun sjávarafurða er.
Þessi skýrsla er samantekt niðurstaðna vöktunarinnar árið 2006. Það er
langtímamarkmið að meta ástand íslenskra sjávarafurða m.t.t. magns óæskilegra
efna. Þessu markmiði verður einungis náð með sívirkri vöktun í langan tíma. Á
hverju ári miðast vöktunin við að bæta við þeim gögnum sem helst vantar og
gera gagnagrunnin þannig nákvæmari og ýtarlegri með ári hverju.. Árið 2006
voru mælddioxin, dioxinlík PCB, bendi PCB,, auk þess tíu mismunandi tegundir
varnarefna, þungmálmar og önnur snefilefni, í sjávarafurðum sem ætlaðar eru
til manneldis og í afurðum lýsis- og mjöliðnaðar.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
Skyrsla_17-08.pdf 533.6Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta