Titill: | “Feitt er agnið” – beita úr aukaafurðum“Feitt er agnið” – beita úr aukaafurðum |
Höfundur: | Rósa Jónsdóttir ; Soffía Vala Tryggvadóttir ; Margrét Bragadóttir ; Haraldur Einarsson ; Höskuldur Björnsson ; Sveinbjörn Jónsson |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1410 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 11.2007 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 43-07 |
Efnisorð: | Beita; Pokabeita; Þörungar; Veiðitilraunir |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Markmið verkefnisins var að þróa og framleiða samsettar beitur fyrir línuveiðar úr vannýttu hráefni með nýþróaðri snjótækni sem fengist hefur einkaleyfi fyrir. Efnasamsetning beituhráefnis og notkun þörunga sem þráavörn í beitu var skoðuð, auk þess sem framkvæmdar voru veiðitilraunir. Í tengslum við verkefnið var beitningavél hönnuð og smíðuð og tilraunir sem gerðar voru með hana vorið 2007 enduðu með 97% beitingu.
Notkun þörunga sem andoxunarefni í beitu skilaði ekki miklum árangri. Beitan var töluvert þránuð strax í upphafi geymslutilraunar svo líklegast náðu þörungarnir ekki að virka sem skildi. Íshúðun með C-vítamíni virtist gefa einhverja vörn, þó svo lofttæmdar umbúðir skipti mestu máli. Töluvert af tilraunum sem voru gerðar á beitunni miðuðu að því að bera beituna saman við hefðbundna beitu úr sama efni. Yfirleitt fékkst minni afli á pokabeituna sem rekja má að hluta til geymslu, en vanda þarf meira til geymslu á pokabeitu en hefðbundinni beitu. Þessar tilraunir miða að því að athuga hvort pokabeitan virki að einhverju leyti fráhrindandi á fisk sem nálgast hana. Við túlkun á niðurstöðum verður hins vegar að hafa í huga að nota má hráefni í pokabeitu sem ekki er hægt að nýta í hefðbundna beitu, betri nýting fæst á beituhráefni og líklega er best að pokabeitan fari frosinn í sjóinn. Undir lok verkefnisins bentu veiðitilraunir til þess að pokabeita gæfi svipaða veiði og hefðbundin beita. Í síðustu veiðiferðinni sem farin var í nóvember 2006 fékkst betri ýsuafli á pokabeitu en venjulega beitu, en galli á uppsetningu tilraunar rýrir nokkuð sannleiksgildi niðurstöðunnar. Auk þess gaf C-vítamínbætt pokabeita heldur meiri afla en pokabeita án C-vítamíns. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_43_07.pdf | 311.3Kb |
Skoða/ |