Útdráttur:
|
Haustið 1649 situr Guðmundur Andrésson, íslenskur almúgamaður frá Bjargi í Miðfirði, bak við lás og slá í kóngsins Kaupmannahöfn. Hann er skólagenginn og ágætlega lærður, fræðimaður og skáld. Aldrei hefur hann þó getað lært að bera tilhlýðilega virðingu fyrir yfirvöldunum, veraldlegum sem andlegum, og það kemur honum í koll. Honum er gefið að sök að hafa samið hneykslanlegt rit gegn Stóradómi, hinni harkalegu siðferðislöggjöf sem þjakaði Íslendinga um aldir. Í Bláturni, einu illræmdasta fangelsi Danaveldis, bíður Guðmundur þess sem verða vill meðan hann veltir fyrir sér lífshlaupi sínu og reynir að raða saman brotum. |