Titill: | Notkun RFID merkja í fiskvinnslu. Ferlastýring og rekjanleikiNotkun RFID merkja í fiskvinnslu. Ferlastýring og rekjanleiki |
Höfundur: | Sveinn Margeirsson |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1409 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 11.2007 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 41-07 |
Efnisorð: | RFID; Rekjanleiki; Ferlastýring; Fiskvinnsla; Hugbúnaðarþróun |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Verkefni þetta hafði að markmiði að þróa og innleiða RFID merkingar í fiskvinnslu. Verkefnið var styrkt af AVS-sjóðnum.
RFID merki eru auðkennimerki sem senda frá sér útvarpsbylgjur. Verkefnið fól m.a. í sér þróun aðferðafræði til að viðhalda lotum frá móttöku fiskikera og í gegnum vinnslu, án þess þó að hægja á vinnslunni, þróun á skrúfanlegum plasttappa með RFID merki til að auðvelda útskiptingu þeirra í fiskikerum og aðlögun RFID lestrar á lyftara. Verkefnið var stutt af niðurstöðum tveggja annarra verkefna, “Vinnsluspá” og “Verkunarspá” og naut jafnframt góðs af vinnu við verkefnið “Framlegðarhámörkun”. Þessi verkefni hafa sýnt fram á tengsl uppruna aflans við vinnslueiginleika og hafa að markmiði að nýta upplýsingar sem skráðar eru í fiskvinnslu til að straumlínulaga og bæta stjórnun virðiskeðju sjávarafurða, frá veiðum og á markað. Forsenda fyrir því að hægt sé að nota mælingarniðurstöður við spálíkanagerð er að tengsl séu þekkt milli mælinga sem framkvæmdar eru á mismunandi stigum framleiðslunnar. Forsendan er með öðrum orðum rekjanleiki sem er tryggður með RFID. Notkun RFID merkja í fiskvinnslu styður þannig þá vinnu og þróun sem átt sér hefur stað í þessum verkefnum, þar sem öryggi og nákvæmni þeirra líkana sem þar eru notuð byggja að stórum hluta á stöðlun í meðferð upplýsinga. Slík stöðlun fæst einmitt með því að innleiða sjálfvirkni í skráningu efnisstrauma í vinnslunni. Notkun RFID merkja er orðin nokkuð útbreidd í smásölu og hefur verslunarkeðjan Wal-Mart m.a. nýtt sér tæknina, sem hefur verið í örri þróun á síðustu árum. Hún er talin gefa mikla möguleika til aukins hagnaðar fyrirtækja í framleiðslu og smásölu, m.a. með minni sóun, bættum möguleikum til framleiðslu-og lagerstýringar og möguleikum á upplýsingagjöf til viðskiptavina. Samstarfsaðilar í verkefninu voru FISK Seafood, Matís, Maritech og Sæplast. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_41_07.pdf | 1.286Mb |
Skoða/ |