Titill: | Ástin, drekinn og dauðinnÁstin, drekinn og dauðinn |
Höfundur: | Vilborg Davíðsdóttir 1965 ; Halldór Baldursson 1965 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/14082 |
Útgefandi: | Mál og menning |
Útgáfa: | 2015 |
Efnisorð: | Rafbækur; Ævisögur; Sjálfsævisögur; Rithöfundar; Krabbamein; Vilborg Davíðsdóttir 1965; Björgvin Ingimarsson 1965-2013 |
ISBN: | 9789979335429 |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | https://www.forlagid.is/vara/astin-drekinn-og-daudinn/ |
Tegund: | Bók |
Gegnir ID: | 991009027129706886 |
Athugasemdir: | Prentuð útgáfa telur 265 bls. 1. útgáfa rafbók merkt 2. útgáfa Undirtitill á kápu: Um listina að lifa og elska í veröld krabbameinsins Myndefni: teikningar. |
Útdráttur: | „Við erum á vissan hátt heppin,“ segir Björgvin upp úr eins manns hljóði. „Flestir sem fá svona fréttir þurfa að endurskoða líf sitt, jafnvel snúa því á hvolf. Við þurfum þess ekki því við lifum einmitt því lífi sem okkur langar mest til.“ Það má til sanns vegar færa; við höfum látið drauma okkar rætast, hvern af öðrum. En mér finnst þetta samt ósanngjarnt og segi það við hann. „Ósanngjarnt?“ Hann sperrir dökkar brýnnar í spurn. „Væri það sanngjarnara ef einhver annar hefði fengið þetta heilaæxli?“ Í Ástinni, drekanum og dauðanum lýsir Vilborg Davíðsdóttir vegferð sinni og Hennar heittelskaða með sjúkdómnum sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að hún varð ekkja. Bókin veitir í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst. En hún er ekki síður óður til kærleikans, hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífinu. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða | Lýsing |
---|---|---|---|---|
Ástin,_drekinn_og_dauðinn-cf1eabc7-d788-85f4-3236-59baf9a2f20e.epub | 2.043Mb | EPUB | Aðgangur lokaður | epub |