Titill: | Geymsluþolstilraunir á þorskbitum. Áhrif ofurkælingar á salt- og próteinsprautaðan þorskvöðvaGeymsluþolstilraunir á þorskbitum. Áhrif ofurkælingar á salt- og próteinsprautaðan þorskvöðva |
Höfundur: | María Guðjónsdóttir ; Kolbrún Sveinsdóttir ; Hannes Magnússon ; Sigurjón Arason |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1404 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 12.2007 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 49-07 |
Efnisorð: | Ofurkæling; Geymsluþol; Prótein; Skynmat; Örverur; NMR |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Samþáttuð kælirannsókn fór fram um áhrif söltunar, próteinsprautunar og
undirkælingar á gæði, efna- og eðliseiginleika salt- og próteinsprautaðs þorskvöðva. Rannsóknin sýnir að með sprautun salts og próteina í vöðva má bæta nýtingu, minnka drip og auka suðunýtingu vöðvans. Á móti kemur að sprautun salts og próteina í vöðva eykur örveruvöxt og myndun reikulla basa og styttir þannig geymsluþol afurðarinnar. Með því að lækka geymsluhitastig mátti þó hamla vöxt örvera og myndun reikulla basa. Oflækkun geymsluhitastigs leiddi hins vegar til frumuskemmda vegna ísmyndunar á yfirborði óháð saltstyrk í vöðvanum. Því þykir ekki æskilegt að geyma ferskan eða léttsaltaðan þorskvöðva við hitastig lægri en -2°C. Einnig voru áhrif þess að skola sýnin í pækilbaði eftir sprautun könnuð. Slík skolun hafði ekki marktæk áhrif á vatnsog saltinnihald eða nýtni sýnanna, en sýndi hins vegar minnkun á myndun reikulla basa. Því þykir æskilegt að flök séu skoluð í pækli að lokinni sprautun til að hamla skemmdarferla að fremsta megni. Skynmatsniðurstöður sýndu að eiginleikar vöðvans breyttust marktækt við sprautun salts og próteina í vöðvann, en sprautaðir hóparnir misstu ferskleikaeinkenni sín fyrr en ferski ómeðhöndlaði viðmiðunarhópurinn. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_49-07.pdf | 353.8Kb |
Skoða/ |