Titill: | Snorri á Húsafelli : saga frá 18. öldSnorri á Húsafelli : saga frá 18. öld |
Höfundur: | Þórunn Valdimarsdóttir 1954 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/14019 |
Útgefandi: | JPV (forlag) |
Útgáfa: | 2016 |
Efnisorð: | Ævisögur; Íslandssaga; 18. öld; Prestar; Niðjatöl; Rafbækur; Borgarfjörður; Húsafell (býli); Snorri Björnsson 1710-1803 |
ISBN: | 9789935117229 |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | https://www.forlagid.is/vara/snorri-a-husafelli/ |
Tegund: | Bók |
Gegnir ID: | 991009016969706886 |
Athugasemdir: | Prentuð útgáfa telur 437 bls. 1. útgáfa rafbók merkt 2. útgáfa Nafnaskrá, atriðisorðaskrá, myndaskrá og nafnaskrá Húsafellsættar aftast í bók Myndefni: myndir. |
Útdráttur: | Höfundur þessarar bókar hefur lagt í þriggja alda ferð aftur í tímann, til að rannsaka og túlka sögulegar heimildir. Textinn opnar dyr inn í öld sem lá í landi fyrir um það bil 250 árum. Misjafnt litróf mannlífsins verður sýnilegt. Líf Snorra Björnssonar varpar ljósi á magnaða þætti á skeiði sem hefur álitið tímabil endalausra harðinda og niðurlægingar. Kringum Snorra eru miklar heimildir þar sem hann er embættismaður, rímnaskáld og sálmaskáld, höfundur fyrsta leikrits á íslensku, náttúrufræðingur, áhugamaður um hið yfirnáttúrulega og þjóðsagnapersóna. Við fylgjumst með Snorra vaxa upp, frá því fjandinn er særður úr honum dagsgömlum í Melakirkju. Sem í skáldsögu horfir höfundur þessa verks, Þórunn Jarla Valdimarsdóttir, í gegnum sjónpípu heimildanna. Hún lýsir því hvernig fólkið sér stórtíðindi aldarinnar, í stað þess að greina frá þeim úr kaldri og yfirvegaðri sögulegri fjarlægð. Sjá má í Skálholti niðurlægða nýsveina í lokrekkjum, skólasveina engjast af kuldakrampa í skólahúsi, fá sér í pípu í göngunum og eta barinn fisk, smjör og drekka blöndu. Við sjáum þjónustur í Skálholti og forboðið kynlíf, nám og leiki. Á stúdentsárunum verður Snorri síðan hestasveinn og skrifari höfðingja, smiður og formaður á vertíð. Við kynnumst lífinu í Aðalvík, þar sem Snorri bjó, og förum yfir mörk raunveruleikans yfir í þjóðsögurnar. Þar er að finna landahlaupara, hórdómsbrot, galdur, morð og manndráp, forboðna verslun og góðan félagsskap, hungurdauða og harðindi. Lokaþáttur söngunnar gerist á Húsafelli. Hinn fjölkunnugi Snorri hjálpar fólki að verjast draugum. Fólk úr þjóðsögunum finnst í skjölum og raunveruleikinn speglast í ósvífnum sögnum. Við verðum enn vitni að basli klerks og á upplýstu sviðinu má sjá stórtíðindi aldarinnar, nýjungarnar í Reykjavík, fjárkláðann ógurlega og móðuharðindin. Bókinni fylgir niðjatal Snorra. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða | Lýsing |
---|---|---|---|---|
Snorri_á_Húsafelli-f847a01d-2539-c08f-41dc-32c31c148380.epub | 6.946Mb | EPUB | Aðgangur lokaður | epub |