Titill: | Einangrun og vinnsla lífvirkra peptíða úr vannýttum tegundum sjávarlífvera : Undirbúningur og myndun tengslanetsEinangrun og vinnsla lífvirkra peptíða úr vannýttum tegundum sjávarlífvera : Undirbúningur og myndun tengslanets |
Höfundur: | Sigurður Vilhelmsson 1953 ; Guðmundur H. Gunnarsson 1974 ; Guðjón Þorkelsson 1953 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1387 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 05.2007 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 11-07 |
Efnisorð: | Aukaafurðir; Fiskvinnsla; Verðmætasköpun; Lífvirk efni; Tengslanet; Vestmannaeyjar |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Í þessu forverkefni var unnið að undirbúningi stofnun miðstöðvar í Vestmannaeyjum sem mun sérhæfa sig í rannsóknum, vinnslu og markaðsetningu afurða unnum úr aukaafurðum fiskvinnslu og vannýttum tegundum. Markmið til langs tíma er að hefja vinnslu á lífvirkum efnum úr sjávarfangi. Til að brúa bilið frá hráefnisöflun yfir í sérhæfða vinnslu á lífvirkum efnum var gert ráð fyrir að miðstöðin byrji á verkefnum sem auka verðmæti aukaafurða.
Myndað var tengslanet sem ætlað er að tryggja uppbyggingu á færni og þekkingu varðandi vinnslu á líf- og lyfjavirkum efnaformum. Tengslanetið leiddi saman bæði erlenda og innlenda vísindamenn og hagsmunaaðila. Sendar voru umsóknir um samstarfsverkefni til Nordforsk og NORA-sjóðsins auk umsóknar til AVS-sjóðsins með fyrirtækjum á Íslandi um slógmeltu- vinnslu, virðisauka og vöruþróun. Einnig tókst að koma þessum áherslum inn tillögur að Vaxtarsamningi Suðurlands sem var undirritaður í oktober 2006. Samstarfið mun halda áfram og stefnt er að því að koma á stórum alþjóðlegum rannsóknarverkefnum um lífvirkni í sjávarfangi. Þar er sérstaklega horft til 7. rammaáætlunar EB. Eins vinnur hópurinn að því að fara yfir stöðu þekkingar og færni hvers fyrir sig og í framhaldinu er stefnt á birtingu ritrýndar yfirlitsgreinar um lífvirk peptíð í sjávarfangi. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_11-07.pdf | 181.4Kb |
Skoða/ |