Útdráttur:
|
Hún er fjórtán og afgreiðir í Söluskálanum þar sem inn streyma af þjóðveginum þýskir túristar, fjölskyldur úr Reykjavík, þéttvaxnir flutningabílstjórar, töffarar á fylleríi – og Biggi. Hestamannamótið nálgast og þá dregur til tíðinda í lífi hennar og hins friðsæla sveitaþorps. HELLA er nýstárleg skáldsaga um Ísland. Hér er lýst ungu fólki og ungri þjóð, dægurmenningu og umróti, aldagömlum hefðum og rótgrónum einkennum, og ekki síst: síkvikri náttúru. Lýsingar höfundar á dæmigerðum nútíma Íslendingum eru bæði fyndnar og glöggar og auga hans fyrir náttúrunni einstakt. HELLA er fyrsta skáldsaga Hallgríms Helgasonar. Hann er bæði vel kunnur myndlistarmaður og vinsæll pistlahöfundur. |