Útdráttur:
|
París 1935. Rithöfundar, málarar, skáld og ljósmyndarar hópast saman á götum úti og á kaffihúsum við bakka Signu í París á sama tíma og fleiri þúsund gyðingar frá allri Evrópu flýja til borgarinnar undan nasistum. Hér hittast tvö ungmenni, hún er af þýskum og pólskum ættum, stolt, viljasterk og hugrökk. Hann er ungverskur eldhugi sem er að reyna fyrir sér sem ljósmyndari. Þetta eru þau Robert Capa og Gerda Taro. Í huga þeirra er það sem skiptir höfuðmáli í lífinu ást, stríð og ljósmyndun. Þau eru ung, falleg og hvatvís og þau þola ekki fasisma. Myndir þeirra frá Borgarastríðinu á Spáni skipa þeim svo í hóp bestu stríðsljósmyndara allra tíma. Biðin eftir Robert Capa er sannsöguleg skáldsaga, byggð á raunverulegri atburðarás og samtímaheimildum. Grípandi frásögn um ástarsamband, sterka réttlætiskennd og viljann til að fórna lífinu til að koma sögunni á blað. |