Útdráttur:
|
Þórður kakali situr að sumbli í Noregi árið 1238 þegar hann fær þær fréttir að faðir hans og hinn glæsti bróðir, Sturla Sighvatsson hafi verið felldir á Örlygsstöðum í fjölmennustu orrustu sem háð hefur verið á Íslandi. Óvígur her, undir forystu Kolbeins unga og Gissurar Þorvaldssonar, hefur þar með hnekkt veldi Sturlunga og lagt landið undir sig. Þórður kakali ákveður að kveðja bílífið í Noregi, halda heim og mæta fjendum sínum. Í hönd fer æsispennandi atburðarás þar sem við sögu kemur fjöldi litríkra persóna; stoltir höfðingjar, þöglir vígamenn, stórlátar konur, flækingshundar og stríðsþreyttir bændur. Einar Kárason skilar þessu mikla efni í einstaklega lifandi og skemmtilegri bók, ljær því dýpt með frumlegri frásagnaraðferð og þeirri sagnagleði sem lesendur þekkja úr hans fyrri verkum. |