Útdráttur:
|
Skáldsagan Kvikasilfur er sjálfstætt framhald af skáldsögunni Heimskra mann ráð. Persónur úr þeirri sögu halda í Kvikasilfri áfram að lifa lífinu og í bakgrunni er íslensk saga síðustu áratuga. Í kynningu segir meðal annars: „Bankastjórinn lendir í steininum, – agalegt skúffelsi í fjölskyldunni, en athafnaskáldið Bárður stofnar landsfrægt flugfélag, Salómon vaknaður af Kleppi, Gúndi bróðir í sérkennilegum viðskiptum frá hótelherbergi sínu í Amsterdam, frú Lára komin í prófkjörið og skyndilega hverfur Sigfús yngri Killian voveiflega úr bílaportinu …“ Bækur Einars Kárasonar njóta sívaxandi vinsælda erlendis, einkum á Norðurlöndum og í Þýskalandi. |