Útdráttur:
|
Gísella Dal lifir fullkomnu lÍfi. Hún býr í stórri íbúð, er fastagestur á fínustu snyrtistofum, drekkur eðalvín og borðar exótískan mat, á milli þess sem hún skrifar stöku grein í tímarit, meira til gamans. En dag einn fær Gísella þær fréttir að ríkulegur arfur ömmu hennar sé uppurinn og að hugsanlega þurfi hún að fórna öllum sínum lífsstíl og fara að vinna fyrir sér. Þar til henni hugkvæmist að fá sér leigjendur … Tryggðarpantur lýsir sambúð fjögurra kvenna í borg sem er full af fólki, innfæddum og aðkomumönnum. Þetta er áleitin og grátbrosleg saga þar sem teflt er saman ólíkum heimum og spurningum varpað fram um lífsgildi, lífsviðhorf - og lífsblekkingu. |