dc.description.abstract |
Í Petsamo, nyrst í Finnlandi, bíður ung kona eftir unnusta sínum. Þau ætla að sigla heim til Íslands með Esjunni, burt frá stríðinu sem er nýkomið til Norðurlanda, en unnustinn kemur ekki. Vorið 1943 er heimstyrjöldin í algleymingi og mikið um að vera í Reykjavík þegar sjórekið lík finnst í Nauthólsvík. Á sama tíma verður ungur piltur fyrir heiftarlegri árás bak við hermannknæpu við Klamratún og kona sem hefur verið að gera sér dælt við hermenn virðist vera horfin. Petsamo er þriðja bókin um lögreglumennina Flóvent og Thorson og samstarf þeirra í Reykjavík stríðsáranna, en þær fyrri eru Skuggasund og Þýska húsið. Glæpasögur Arnaldar Indriðasonar eru nú orðnar tuttugu talsins, á jafn mörgum árum. Þær hafa verið þýddar á um fjörtíu tungumál og selst í yfir tólf milljónum eintaka. Enginn íslenskur höfundur nýtur meiri vinsælda, hér heima jafnt sem erlendis, og bækurnar hafa fært honum ótal verðlaun og viðurkenningar víða um lönd. |
is |