Titill: | Innra eftirlitInnra eftirlit |
Höfundur: | Lilja Steinþórsdóttir |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1284 |
Útgefandi: | Seðlabanki Íslands |
Útgáfa: | 2004 |
Ritröð: | Peningamál ; 2004, 1. |
Efnisorð: | Seðlabankar; Seðlabanki Íslands; Eftirlit |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Tímaritsgrein |
Útdráttur: | Skömmu eftir 1990 fór að bera á vaxandi gagnrýni í Evrópu á gæði og umfang fjárhagsskýrslna og
skilvirkni sjálfstætt starfandi endurskoðenda í kjölfar örlagaríkrar vanrækslu af ýmsu tagi, jafnt í einkageiranum sem og í þeim opinbera. Fjallað er um bakgrunn og þróun góðra stjórnunarhátta. Tæpt er á stjórnunarháttum innan Seðlabanka Íslands og hann notaður sem dæmi og útskýrt hvernig alþjóðlegar breytingar á starfsemi seðlabanka hafa haft áhrif á skipulag og starfshætti bankans. Helstu þættir innra eftirlits eru skoðaðir og athyglinni er beint að því hvernig nýta má innra eftirlit og innri endurskoðun til þess að hvetja til og stuðla að breytingum og endurnýjun. Niðurstaðan er að innri endurskoðun eykur virði stofnunarinnar með því að leggja mat á eftirlitskerfin og gefa stjórnendum skýrslur um ástand þeirra. Stjórnendur nota upplýsingarnar síðan sem mælikvarða á „heilbrigði“ stjórnkerfisins. Innri endurskoðun auðveldar þannig breytingar með því að veita vitneskju um raunverulega stöðu stofnunarinnar og hraða breytinganna sem eiga sér stað. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
2004-1 Innra eftirlit e. Lilja Steinþórsdóttir.pdf | 189.2Kb |
Skoða/ |