Titill: | Inngrip Seðlabanka Íslands á innlendum gjaldeyrismarkaði og áhrif þeirra á gengi krónunnarInngrip Seðlabanka Íslands á innlendum gjaldeyrismarkaði og áhrif þeirra á gengi krónunnar |
Höfundur: | Gerður Ísberg ; Þórarinn G. Pétursson |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1275 |
Útgefandi: | Seðlabanki Íslands |
Útgáfa: | 2003 |
Ritröð: | Peningamál ; 2003, 1 |
Efnisorð: | Seðlabanki Íslands; Gjaldeyrisviðskipti |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Tímaritsgrein |
Útdráttur: | Frá stofnun skipulagðs millibankamarkaðar með gjaldeyri um mitt ár 1993 hafa hlutverk og aðkoma
Seðlabankans að markaðnum tekið töluverðum breytingum. Framan af var bankinn mikilvægur þátttakandi á markaðnum og átti þátt í stórum hluta viðskipta til þess að tryggja vísi að sem skilvirkastri verðmyndun á gjaldeyri. Eftir því sem markaðurinn hefur þroskast hefur bankinn hins vegar séð sér tækifæri til að draga sig út af markaðnum og hefur innkoma hans þá nánast eingöngu verið að hans frumkvæði, annað hvort beinlínis til að hafa áhrif á gengi krónunnar eða við sérstakar aðstæður sem ekki tengjast beint framgangi peningastefnunnar. Í þessari grein er fjallað um inngrip Seðlabanka Íslands á innlendum gjaldeyrismarkaði og árangur þeirra. Því er haldið fram að beinn árangur þeirra hafi verið fremur takmarkaður og þá yfirleitt eingöngu til skamms tíma. Þó er ekki hægt að útiloka að bankanum hafi tekist að tefja nægilega mikið fyrir veikingu krónunnar þannig að meginþungi hennar hafi komið fram þegar mesta ofþenslan var að baki. 1. Gerður er staðgengill framkvæmdastjóra peningamálasviðs Seðlabanka Íslands og Þórarinn er deildarstjóri rannsóknardeildar hagfræðisviðs Seðlabanka Íslands og lektor við Háskólann í Reykjavík. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
2003-1 Inngrip ... Þórarinn G. Pétursson.pdf | 199.8Kb |
Skoða/ |