Titill:
|
Hvers vegna beina læknar í auknum mæli sjónum að feitu fólki? : um sjúkdómsvæðingu offituHvers vegna beina læknar í auknum mæli sjónum að feitu fólki? : um sjúkdómsvæðingu offitu |
Höfundur:
|
Ástríður Stefánsdóttir 1961
|
URI:
|
http://hdl.handle.net/10802/12550
|
Útgáfa:
|
2016 |
Efnisorð:
|
Ritrýndar greinar; Offita; Sjúkdómsvæðing; Lýðheilsa; Líkamsvitund
|
Tungumál:
|
Íslenska
|
Tengd vefsíðuslóð:
|
http://netla.hi.is/serrit/2016/menntun_mannvit_og_margbreytileiki_greinar_fra_menntakviku/001.pdf
|
Tegund:
|
Tímaritsgrein |
Gegnir ID:
|
991008112759706886
|
Birtist í:
|
Netla 2016
|
Athugasemdir:
|
Rafræn útgáfa eingöngu Sérrit 2016 - Menntun, mannvit og margbreytileiki. Greinar frá Menntakviku |
Útdráttur:
|
Í þessari grein verður fjallað um þá spurningu hvers vegna offita er í síauknum mæli við- fang heilbrigðisstétta og hvort sú þróun sé til hagsbóta fyrir feitt fólk. Þótt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafi lýst því yfir að offita sé meðal alvarlegustu heilbrigðisvandamála sem mannkynið glímir nú við er ekki augljóst að nálgun læknisfræðinnar verði til þess að auka lífsgæði hjá feitu fólki. Faraldursfræðilegar rannsóknir og langtímarannsóknir á árangri meðferðar gegn offitu sýna að hún skilar litlum árangri. Í þessari grein mun ég lýsa hinni hefðbundnu raunvísindalegu orðræðu um offitu en jafnframt varpa ljósi á sjúkdómsvæðingu (e. medicalization) feits fólks. Ég mun fjalla um þau gildi og félagslegu öfl sem gætu útskýrt hvers vegna offita er í síauknum mæli viðfang lækna þrátt fyrir lítinn árangur almennra læknismeðferða. Ég byggi hér á greiningu Sadler, Jotterland, Lee og Ingrig (2009) sem hafa skilgreint hugtakið sjúkdómsvæðingu (e. medicalization) og bent á hvernig við getum lagt mat á hana innan lífssiðfræðinnar. Í lokin ræði ég holdafarsfordóma í samfélaginu og hvernig þeir hafa knúið feitt fólk til að tjá sig um líf sitt. Með því að líta til rannsókna feits fólks á eigin lífi og stöðu má varpa enn betra ljósi á sjúkdómsvæðingu offitu og fá betri sýn á það hvort hún sé til hagsbóta fyrir feitt fólk eður ei. |