Titill: | NeiNei |
Höfundur: | Ari Jósefsson 1939-1964 ; Silja Aðalsteinsdóttir 1943 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/11326 |
Útgefandi: | Mál og menning |
Útgáfa: | 2013 |
Efnisorð: | Íslenskar bókmenntir; Ljóð; Rafbækur; Smásögur |
ISBN: | 9789979333753 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Bók |
Gegnir ID: | 991006801339706886 |
Athugasemdir: | Rafbók í varðveislu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Prentuð útgáfa telur 67 bls. Meðal efnis: Allt fólk þarf ljóð : Ari Jósefsson og Nei / Silja Aðalsteinsdóttir: s. 61-66 |
Útdráttur: | Nei – fyrsta og eina ljóðabók Ara Jósefssonar – kemur nú út í þriðja sinn. Hún kom út fyrst árið 1961 þegar höfundur var tuttugu og eins árs, seldist fljótlega upp en gekk milli manna í uppskriftum og ljósritum. Ari lést sviplega árið 1964 en bókin varð smám saman goðsögn og nokkur ljóð hennar, til dæmis „Leysíng“, „Stríð“ og „Trúarjátníng“, urðu klassísk í íslenskum bókmenntum. Í þessari þriðju útgáfu hefur verið bætt við þrem smásögum sem birtust í tímaritum og dagblaði meðan Ari lifði auk þess sem áður óbirtum ljóðum er skotið inn í eftirmála Silju Aðalsteinsdóttur. Ari Jósefsson fæddist á Blönduósi 1939. Hann fór í Menntaskólann á Akureyri en hætti þar og hélt til Reykjavíkur þar sem hann varð fljótlega áberandi í hópi ungu skáldanna, gaf meðal annars út tímaritið Forspil með Degi Sigurðarsyni og fleirum árið 1958. Veturinn 1959-60 dvaldist hann í Barcelona en las eftir það utanskóla við Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan stúdent 1961. Sama ár kom út ljóðabókin Nei. Hann stundaði nám í íslenskum fræðum í tvö ár, hélt svo til Rúmeníu til að læra rómönsk fræði og var á heimleið þaðan þegar hann drukknaði þann 18. júní 1964. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
9789979333753.epub | 163.1Kb | EPUB | Aðgangur lokaður |
9789979333753.jpg | 52.10Kb | JPEG image | Aðgangur lokaður |