Titill: | Indjáninn : skálduð ævisagaIndjáninn : skálduð ævisaga |
Höfundur: | Jón Gnarr 1967 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/11292 |
Útgefandi: | Mál og menning |
Útgáfa: | 2013 |
Efnisorð: | Íslenskar bókmenntir; Skáldsögur; Sjálfsævisögur; Rafbækur |
ISBN: | 9789979333685 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Bók |
Gegnir ID: | 991006785429706886 |
Athugasemdir: | Rafbók í varðveislu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Prentuð útgáfa telur 221 bls. |
Útdráttur: | „Fæðing mín er annað reiðarslag fyrir fjölskylduna. Að vísu er ég ekki þroskaheftur. Það er léttir. En eftir fæðinguna blasir önnur hryllileg staðreynd við: Ég er rauðhærður. Það hefði ekki getað verið meira áfall þótt ég hefði verið svartur. “ Indjáninn er saga um fjörmikinn strák, örverpi aldraðra foreldra. Drengurinn á við ýmis vandamál að stríða sem valda honum erfiðleikum í uppvextinum, svo sem ofvirkni, athyglisbrest, rautt hár og nærsýni. Hann er hugmyndaríkur og margvísleg uppátæki hans, sum stórhættuleg, vekja litla lukku hjá hinum fullorðnu. Þetta er áhrifamikil uppvaxtarsaga sem sveiflast á milli strákslegrar gleði og nístandi einmanaleika þess sem ekki er alltaf í takt við umhverfið, en jafnframt er hér brugðið upp ljóslifandi mynd af samfélagi áttunda áratugarins frá sjónarhorni barnsins. Jón Gnarr kallar Indjánann skáldaða ævisögu og segir í eftirmála sínum: „Margir spyrja sig eflaust hvort þesssi bók sé ævisaga eða skáldsaga. Hún er bæði. Hún er ekki alveg sönn. Það er þó engin bein lygi í henni. Ég trúi ekki á lygi.“ |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
9789979333685.epub | 295.9Kb | EPUB | Aðgangur lokaður |
9789979333685.jpg | 42.07Kb | JPEG image | Aðgangur lokaður |