Útdráttur:
|
Mannabein finnast í grunni nýbyggingar í útjaðri Reykjavíkur og líkur benda til að glæpur hafi verið framinn. Beinin virðast nokkurra áratuga gömul og sérfræðingar eru fengnir til að grafa þau upp en samtímis hefur lögreglan leit að fólki sem gæti vitað eitthvað um málið. Erlendur, Sigurður Óli og Elínborg, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum höfundar, eiga erfitt verkefni fyrir höndum en smám saman skýrist myndin og brotin raðast saman í helkalda, óvænta harmsögu. Arnaldur Indriðason hlaut Glerlykilinn, norrænu glæpasagnaverðlaunin, árið 2003 fyrir Grafarþögn. Hann hlaut sömu verðlaun fyrir Mýrina árið 2002. |