Útdráttur:
|
Kynferðislegar fantasíur geta verið dónalegar, hamslausar og forboðnar en líka rómantískar og blíðar. Þær birtast hér í fjölbreytilegu formi – í sögum, textabrotum og hugleiðingum um eldheita ástríðufundi, skyndikynni og stolnar stundir. Sumt gæti gerst hvar sem er, annað við óvæntar og séríslenskar aðstæður – í miðbæ Reykjavíkur eða úti í villtri íslenskri náttúru. Bókin geymir 51 fantasíu fyrir konur til að njóta, forvitnast um og samsama sig við. Þær voru valdar úr fjölda fantasía sem voru sendar inn nafnlaust. Sumar eru kannski kunnuglegar, aðrar sem fjarlægur draumur – en allar eru þær uppfullar af erótík og spennu. |