#

Offshore aquaculture farming. Report from the initial feasibility study and market requirements for the innovations from the project

Skoða fulla færslu

Titill: Offshore aquaculture farming. Report from the initial feasibility study and market requirements for the innovations from the projectOffshore aquaculture farming. Report from the initial feasibility study and market requirements for the innovations from the project
Höfundur: Ólafur Ögmundarson 1976 ; John Holmyard ; Gunnar Þórðarson 1954 ; Friðrik Sigurðsson 1957 ; Helga Gunnlaugsdóttir 1963
URI: http://hdl.handle.net/10802/2560
Útgefandi: Matís
Útgáfa: 01.10.2011
Ritröð: Skýrsla Matís ; 29-11
Efnisorð: Kræklingarækt; Skýrslur
ISSN: 1670-7192
Tungumál: Enska
Tegund: Skýrsla
Útdráttur: Í þessari skýrslu er lagt mat á tæknilegar kröfur og markaðsmöguleika á
legufærum sem gætu hentað við þróun á kræklingarækt í úthafi, við erfiðar
aðstæður.
Skoðuð var sú tækni sem notuð er við kræklingaræktun á heimsvísu, þar
með talin ræktun innfjarða, úthafsræktun og að hluta til í óvörðu umhverfi.
Mest af kræklingarækt heimsins fer fram í vörðu umhverfi, þar sem skjól er
fyrir úthafsöldu og eru byggðar upp með yfirborðs flotholtum eða línu sem
ekki stenst álag úthafsöldu. Þrátt fyrir það, þarf innfjarðarræktun á öflugum
akkerum að halda sem gætu jafnframt dugað við úthafsræktun.
Úthafsræktun á krækling er yfirleitt byggð á djúpsjávar eða hálf‐marandi
línum sem lagðar eru neðan við yfirborð sjávar, sem eru minna háðar
úthafsöldu og þeim kröftum sem þeim fylgja, en hægt er að þjónusta frá
yfirborði. Meirihluti úthafs ræktunar eru annaðhvort þegar stórræktun eða
mun verða stórræktun með þúsundir akkera. Þjónusta og viðhald akkera
við slíkar aðstæður kalla á vandamál og gera miklar kröfur um styrkleika og
áreiðanleika. Slíkur búnaður kallar á hagkvæman og áreiðanlegan búnað,
sem hægt er að staðsetja með mikilli nákvæmni og miklum fjölda og stærð
sem hentar tiltölulega smáum þjónustubátum.
Sá búnaður sem best stendur undir slíkum kröfum er skrúfakkeri sem hægt
er að staðsetja með búnaði frá yfirborði án þess að nota kafara.
Úthafsræktun á krækling hefur verið rekin í stórum stíl með góðum árangri
í Kína, Frakklandi og Ítalíu, áratugum saman. Þessi ræktunaraðferð hefur
einnig öðlast útbreiðslu, í smærra mæli þó, í Bretlandi, Þýskalandi, Írlandi,
BNA, Búlgaríu og Nýja Sjálandi. Stórtækari ræktun er í undirbúningi í Nýja
Sjálandi og Bretlandi, og reyndar í mörgum öðrum löndum, og verið að
þróa hagkvæmni slíkrar ræktunar.
Markaður í nánustu framtíð fyrir akkeri hönnuð fyrir úrhafsræktun á
kræklingi mun að mestu verða drifin af markaðsþörf fyrir kræklinginn
sjálfan, sem aftur ræðst af almennri efnahagsþróun í markaðsríkjum. Stefna
Evrópusambandsins og einstakra ríkja innan þess í eldi sjávarafurða liggur í
að kynna stórræktun á sameiginlegri ræktun kræklings og þangi, sem gæti
leitt til mikilla markaðs möguleika fyrir búnað til slíkra ræktunar. Mikil
áhersla er á endurnýjanlega nýtingu auðlinda sem gæti aukið úthafsræktun
á krækling. Framtíðar eftirspurn fyrir búnað eins og skrúfakkeri gætu líka
komið frá innfjarðarræktun, þar sem slíkur búnaður er ódýr og öruggur og
einfaldur í notkun, og stenst vel samkeppni við eldri gerðir að búnaði sem
hingað til hafa verið í notkun.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
Matís 29-11 Off ... ing- feasibility study.pdf 1.148Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta