#

Skýrsla umboðsmanns barna fyrir árið 1999

Skoða fulla færslu

Titill: Skýrsla umboðsmanns barna fyrir árið 1999Skýrsla umboðsmanns barna fyrir árið 1999
URI: http://hdl.handle.net/10802/2958
Útgefandi: Umboðsmaður barna
Útgáfa: 09.2000
Efnisorð: Börn; Barnavernd; Barnaréttur; Ársskýrslur
Tungumál: Íslenska
Tegund: Ársskýrsla
Athugasemdir: Skýrslu þá, sem hér fylgir, hef ég látið taka saman um störf mín á árinu 1999, sbr. 8. gr. laga um umboðsmann barna, nr. 83/1994, en þar segir að umboðsmaður barna skuli árlega gefa forsætisráðherra skýrslu um starfsemi sína á liðnu almanaksári.
Niðurröðun efnis er með svipuðum hætti og verið hefur undanfarin ár. Í fyrsta hluta skýrslunnar eru aðfaraorð mín, þar sem ég dreg saman, í stuttu máli, það helsta er bar til tíðinda á árinu. Kynningar- og fræðslustarfsemi embættisins er gerð skil í öðrum hluta skýrslunnar og í þeim þriðja er yfirlit yfir skráð erindi, bæði munnleg
og skrifleg, sem bárust embættinu á árinu 1999. Í fjórða hluta skýrslunnar er að finna efnislega umfjöllun um þau mál, sem ég tók til meðferðar, bæði samkvæmt ábendingum og að eigin frumkvæði. Þar er jafnframt að finna umsagnir mínar til Alþingis og stjórnvalda.
Af ýmsum ástæðum eru mál gjarnan lengur en eitt almanaksár í umfjöllun hjá
embættinu því er til glöggvunar, vísað til eldri skýrslna minna (SUB: = skýrsla umboðsmanns barna, ártal og kafli ) þegar slíkt á við, um tiltekið málefni. Þá er að þessu sinni í skýrslunni, þ.e. í kafla 11, að finna dæmi um gang ýmissa mála, sem
ég hef haft til umfjöllunar á umliðnum árum og til hvaða umbóta þau afskipti hafa leitt, í þágu umbjóðenda minna.
Eins og fyrr birti ég álitsgerðir mínar og umsagnir í heild sinni, orðrétt og skáletraðar, sem og bréf þau, er ég hef ritað ýmsum aðilum vegna vinnu minnar við einstök mál. Með sama hætti birti ég einnig, í flestum tilvikum, bréf er mér hafa borist vegna mála sem unnið hefur verið að, orðrétt og innan tilvitnunarmerkja.
Tvo þeirra fyrirlestra, er ég flutti opinberlega á árinu birti ég, sem viðauka I og II aftast í skýrslunni. Annar þeirra var fluttur á menntaþingi frjálsra félagasamtaka og hinn sem ber heitið: Réttur barna til að njóta virðingar, var haldinn á aðalfundi
SAMFOKS.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
sub1999.pdf 3.115Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta