Útdráttur:
|
Hún sá ekkert nema hvítt fjúk koma æðandi úr sortanum og augnablik hvarflaði að henni að gefast upp, fara út í storminn og láta snjóinn breiða hvíta sæng sína yfir sig. Líða inn í meðvitundarleysi áður en þau næðu henni. Guðgeir starfar tímabundið sem öryggisvörður á Höfn í Hornafirði á meðan hann jafnar sig á áföllum í starfi og einkalífi. Líf hans hefur tekið algjörum stakkaskiptum á stuttum tíma. Áður var hann hamingjusamlega giftur fjölskyldufaðir og farsæll yfirmaður í rannsóknarlögreglunni en nú reynir hann að láta dagana líða hjá og láta lítið á sér bera. Forvitni Guðgeirs er vakin og hann dregst inn í óvænta atburðarás þegar ung erlend kona hverfur sporlaust. Það er engu líkara en að hún hafi aldrei verið til. Inni í Lóni býr kona með fullorðnum syni sínum. Hvaða óhugnaður býr í einangruninni? |